Obex Lausnir ehf | Kt. 620208-0940 | Hvanneyrarbraut 78 | 580 Siglufjörður | obex@obex.is
Höfuðborgasvæðið sími 897 8418 | Landsbyggðin sími 897 8417
Duralock
Vöruúrvalið hjá Duralock er einstakt, allt frá einföldum rimlagirðingum fyrir heimili og sumarbústaði til heidarlausna fyrir heimsfræga keppnis og sýningarvelli eins og Royal Ascot og Aintree ( myndin hér til hliðar ) þar sem þeir útveguðu allar nauðsynlegar girðingar fyrir brautirnar þar.
..............................................................................................................
Lausnirnar fyrir Reiðvellina eru einstakar útaf því að þeir þurfa engar festingar úr járni, rær eða bolta en erum samt hannaðar til varanlegrar uppsetningar, en geta auðveldlega verið teknar í sundur og fjarlægðar. Duralock er svo sannarlega leiðandi, fjölþjóðlegt fyrirtæki með rekstur í öllum heimsálfum.
...........................................................................................................
Lausnir fyrir heimili sumarbústaði og stofnanir
Vörurnar sem OBEX Lausnir bjóða frá Duralock byggja ætíð á nýjustu tækni í PVC-u framleiðslu. Blöndur sem auka ákeyrsluþol og þol fyrir útfjólubláum geislum veita vörunum aukinn styrk og þol fyrir veðrun og sólarljósi.
Vörurnar halda fallegu útliti sínu út líftíma sinn og eru viðhaldsfríar. Þær rotna ekki né bogna, flagna ekki né springa, verða ekki brothættar eða klofna. Hægt er að fá vörurnar í hvítu, grænu og súkkulaðibrúnu.
Lausnirnar frá Duralock er auðvelt að setja upp og er einnig auðvelt að sníða þær að breytilegum aðstæðum eins og bílastæðum, íþróttavöllum, golfvöllum og jafnvel niður við smábátabryggjur þar sem gerðar eru kröfur um öryggi jafnt sem fallegt útlit.
Samantekið:
- Nægilega sterkar til að þola erfið skilyrði
- Líta vel út til enda líftíma
- Mjög vel sjáanlegar í hvítu
- Engar skarpar brúnir eða horn, aðeins sléttar ávalar línur
- Engin þörf fyrir málningu eða viðarvarnir
- Heldur lit, fölnar ekki
- Rotna ekki né bogna, flagna ekki né springa, verða ekki brothættar eða klofna
- Auka öryggi til almennings mikið
..............................................................................................................
HEIMILI, SUMARBÚSTAÐIR OG STOFNANIR